31.03.1980
Efri deild: 56. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

122. mál, landflutningasjóður

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Á þskj. 205 er frv. til l. um breyt. á lögum nr. 62 31. maí 1979, um landflutningasjóð. Þetta frv. er flutt af samgn. Nd. og efni þess er að kveða skýrt á um gjaldstofn þann sem gjaldið til landflutningasjóðsins leggst á, en það þótti ekki koma nógu vel fram eins og lögin eru nú.

Samgn. Ed. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að frv. verði samþ. óbreytt.