02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (1604)

116. mál, fjárlög 1980

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég tel þessa till. að ýmsu leyti góða og hygg að flm. þurfi alls ekki að biðjast afsökunar á henni að neinu leyti. En ég er ekki viss um að það, sem háir fjölmiðlunum í góðri, ítarlegri og skemmtilegri frásögn af störfum Alþingis, sé aðstöðunni að kenna og segi nei.