02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)
116. mál, fjárlög 1980
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég leit svo á, að þessi till. væri fyrsta skref í þá átt að reyna að bæta þá slæmu aðstöðu sem ríkisfjölmiðlar búa við í þessari stofnun. Hún mundi auka og bæta alla fréttaþjónustu, sem þm. gjarnan kvarta undan, a. m. k. þegar þeim finnst mál þeirra afflutt. Ég leit svo á, að þetta væri fyrsta skref í þá átt að hægt yrði að útvarpa beint frá Alþ. hvenær sem þessum fjölmiðlum eða hljóðvarpsdeild Ríkisútvarps byði svo við að horfa, og ég taldi höfuðkostinn við þessa till. þá, að hún mundi kannske stytta ræður þm. Ég segl þess vegna já.