02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

116. mál, fjárlög 1980

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Með samþykkt þessarar till. væri Alþ. að bæta nokkuð fyrir þau ítrekuðu svik sem allir vinstri flokkarnir, sem setið hafa í ríkisstj. síðustu misserin, hafa gert sig seka um í sambandi við loforð sín um félagsmálapakka til sjómannastéttarinnar. Ég tel rétt, að reynt verði að taka þessa vanvirðu af þm. vinstri flokkanna, og segi því já.