02.04.1980
Sameinað þing: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

116. mál, fjárlög 1980

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Þessi till. er um það, að ríkissjóður skili til iðnaðarins aðlögunargjaldi sem lagt var á og rennur í ríkissjóð. Þessu var lofað, að iðnaðurinn fengi þetta til iðnþróunar í ár, þegar þetta gjald var lagt á í fyrra. Ég segi því já.