09.04.1980
Sameinað þing: 42. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

Rannsókn kjörbréfa

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 2. apríl 1980.

Helgi Seljan, 2. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég að læknisráði mun ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 2. apríl 1980.

Eggert Haukdal, 6. þm. Suðurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður minn, Siggeir Björnsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 2. apríl 1980.

Tómas Árnason, 1. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að i. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðmundur Gíslason kaupfélagsstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 8. apríl 1980.

Formaður þingflokks sjálfstæðismanna hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Geirs Hallgrímssonar, 1. þm. Reykv., sem nú er erlendis, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður hans, Ellert B. Schram ritstjóri, taki á meðan sæti hans á Alþingi, þar sem 1. varamaður, Ragnhildur Helgadóttir, er nú um stundarsakir á sjúkrahúsi vegna slyss.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Þar sem enginn þessara varamanna hefur átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfum þeirra allra. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka þau til athugunar og verður gefið fundarhlé í 10 mín. á meðan. — [Fundarhlé.]