10.04.1980
Efri deild: 63. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)

135. mál, orkujöfnunargjald

Frsm. 3. minni hl. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Í 3. gr. þessa lagafrv. er gert ráð fyrir að þessi lög öðlist gildi frá og með 14. apríl 1980 og gildi ótímabundið. Ég held að slíkt sé óeðlilegt um gjald af þessu tagi. Ég held að rétt sé að því sé ætlaður markaður gildistími. Þess vegna ætla ég að leyfa mér að flytja svohljóðandi brtt.:

„Við 3. gr. bætist: Lögin falla úr gildi frá og með 1. janúar 1981.“