21.04.1980
Efri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (1847)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Frsm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það mál, sem hér um ræðir, er að heimila Hitaveitu Suðurnesja að stækka raforkuver sitt í Svartsengi um allt að 6 mw og reisa og reka línur til þess að tengja orkuverið við orkuflutningskerfi.

Nefndin hefur fjallað um þetta frv. og orðið sammála um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt.