20.12.1979
Neðri deild: 10. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (195)

49. mál, almannatryggingar

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Þetta eru miklir peningar, gjaldið heldur ógeðfellt, en það er vont að standa að því að rífa svona mikla peninga út úr almannatryggingakerfinu nú á síðustu stundu, og þrátt fyrir það, sem ég nefndi fyrst, segi ég já.