30.04.1980
Efri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

76. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Það voru einnig athugaðar nýjar umsóknir sem bárust eftir að frv. var lagt fram. N. er sammála um að mæla með að 41 manni verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni samkv. till. sem kemur fram á sérstöku þskj. sem er nr. 373.