30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)
Fundarsókn þingmanna
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Fundur er settur í neðri deild Alþingis. Ég hlýt að finna að því, hversu seint og illa hv. dm. mæta til fundar. Klukkan er sex mínútur gengin í þrjú og það er fyrst nú sem hægt er að ná saman ályktunarhæfum fundi. Ég bið menn að taka þetta til athugunar. Ég bið ykkur að skila því til hv, meðbræðra ykkar hvernig komið sé. Hér eru viðstaddir þingflokksformenn sem hljóta að taka málið til athugunar.