30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

7. mál, söluskattur

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Eins og fram kom við 1. umr, þessa máls eru sjálfstæðismenn andvígir þessu frv. Það er flutt af vinstri stjórn og er framlengt af minnihlutastjórn. Það hefur komið fram við þessa umr., hverjir það eru sem bera ábyrgð á þessu frv., og kemur best fram þegar núv. ríkisstj. leggur síðan til að brbl. minnihlutastjórnar Alþfl. og vinstri stjórnarverði samþ. og staðfest.