30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)

20. mál, hækkun lægstu launa

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Hér er um samkynja mál að ræða, þ. e. brbl. frá 20. nóv. 1979, en þessi löggjöf hefur verið í gildi um nokkurt skeið. Leggur fjh.- og viðskn. einróma til að þetta frv. og þessi brbl. verði samþykkt. Ég vænti þess að hv. d. sjái sér fært að verða við einróma tilmælum nefndarinnar.