21.12.1979
Efri deild: 12. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (209)
42. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Eins og fram kom í ummælum forseta er hæstv. fjmrh. önnum kafinn í umræðum utan dagskrár í Nd. og mikil nauðsyn á að hraða afgreiðslu mála. Hér hefur verið dreift í d. á þskj. 72 brtt. frá hæstv. ráðh. við þetta frv., þar sem kveðið er á um að ákvæði til bráðabirgða bætist við frv. Eru efnisþættir þessa ákvæðis þeir, að erlendum ríkisborgurum og ríkisfangslausum mönnum verði gert skylt að gera full skil á þinggjöldum sínum og útsvari fyrir brottför af landinu og atvinnurekendur þeirra gerðir ábyrgir fyrir því að slíkt skuli gert.
Þetta ákvæði til bráðabirgða er til komið vegna þess, að frv., sem liggur fyrir Nd. um breyt. á lögum um tekju- og eignarskatt, er til meðferðar í hv. fjh.- og viðskn. þeirra d. og samkomulag hefur orðið um að fresta afgreiðslu þess máls þar til þing kemur saman að nýju eftir áramót, en talið var nauðsynlegt að hafa í lögum ákvæði af því tagi, sem er birt á þskj. 72, til að eðlilegar innheimtur á gjöldum erlendra ríkisborgara geti átt sér stað á þeim tíma sem líður frá fyrsta degi næsta árs og þar til nýtt frv. um tekju- og eignarskatt verður að lögum.
Ég hef kynnt þessa brtt. fyrir meðnm. mínum í hv. fjh.og viðskn. þessarar d., og þeir eru allir sammála um að þetta ákvæði verði samþ. Vil ég leggja til við hv. d. að brtt. á þskj. 72 verði samþ.