30.04.1980
Neðri deild: 66. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (2092)

168. mál, listskreytingar opinberra bygginga

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta frv. Mér finnst sjálfsagt að sýna því fullan áhuga. Mér finnst þetta frv. af hinu góða og beri að styðja að því að það nái fram að ganga. Ég vil lýsa því yfir, að ég hygg að við Alþb.-menn munum gera það sem við getum til þess að það hljóti afgreiðslu á þessu þingi.