05.05.1980
Efri deild: 74. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2309 í B-deild Alþingistíðinda. (2177)

148. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir stjfrv. sem fjallar um breyt. á lögum um Lífeyrissjóð bænda. Frv. þetta hefur verið afgreitt frá Nd. og þyrfti að fá lokaafgreiðslu frá Alþ. fyrir vorið.

Þetta frv. er flutt til samræmingar, en með lögum nr. 3/1977 voru sett ákvæði um sérstaka uppbót á lífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði bænda fyrir árin 1976 og 1977 til samræmis við samkomulag, sem Alþýðusambandið hafði gert við vinnuveitendur í febrúarmánuði 1976, og í samræmi við þá breytingu, sem gerð hafði verið á lögum um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum. Ráðstafanir þessar voru síðan framlengdar til ársloka 1979 með nýju samkomulagi launþega og vinnuveitenda í júní 1977, og með lögum sama ár var sams konar framlenging uppbótargreiðslna lögfest gagnvart Lífeyrissjóði bænda.

Með lögum nr. 97/1979, um eftirlaun til aldraðra, hafa ofangreindar uppbótargreiðslur, sem um var samið 1976 og 1977, enn verið framlengdar um þrjú ár, þ. e. fyrir árin 1980–1982. Í þeim lögum eru jafnframt ákvæði um hvernig útgjöld til uppbótargreiðslna samkv. II. kafla laga um Lífeyrissjóð bænda skuli borin þetta tímabil, og er þá gert ráð fyrir framlengingu ákvæða laga nr. 64/1977. Í þessu frv., sem hér er til umr., er kveðið á um slíka framlengingu.

Auk þeirra ákvæða, sem varða lífeyrishækkanir fyrir þrjú næstu ár, eru í 1. gr. frv. ákvæði um breytingar á 2. gr. núgildandi laga um skilyrði fyrir aðild að sjóðnum. Þar er um að ræða að lækka aldursmarkið úr 20 árum í 16 ár og hins vegar að rýmka heimild til að veita launþegum í landbúnaði aðild að sjóðnum. Þessi ákvæði eru í fullu samræmi við þróun undanfarinna ára, sbr. lög um starfskjör launþega og lög um forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum, og þann undirbúning sem átt hefur sér stað að lagasetningu um almenna þátttökuskyldu í lífey-rissjóðum, sbr. frv. sem flutt hafa verið um það efni nú seinustu daga í hv. efri og neðri deild.

Með ákvæðum 2. gr. frv. er tryggt að lífeyrisfjárhæðir þær, sem Stofnlánadeild landbúnaðarins og ríkissjóður eiga að standa undir, sbr. 19. gr. laga nr. 101/1970, breytist árlega eftir sömu reglu og undanfarin ár þann tíma er hin sérstaka uppbót skal borin uppi með þeim hætti sem lög nr. 97/1979 kveða á um. Þá er gert ráð fyrir að sama gildi um hluta lífeyrissjóðsins ef lífeyrisþegi samkv. II. kafla laganna á að hluta rétt samkv. I. kafla þeirra.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv., en legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn.