21.12.1979
Efri deild: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (220)
29. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. (Stefán Guðmundsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur komið saman og fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum um útflutningsgjald af sjávarafurðum, nr. 5 13. febr. 1976.
N. mælir einróma með því, að þetta frv. verði samþ., og er nál. undirritað af Stefáni Guðmundssyni, Geir Gunnarssyni, Guðmundi Karlssyni, Agli Jónssyni, Lárusi Jónssyni, Guðmundi Bjarnasyni og Karli Steinari Guðnasyni.