05.05.1980
Neðri deild: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2336 í B-deild Alþingistíðinda. (2218)
172. mál, Kennaraháskóli Íslands
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Í 1. gr. þessa frv. er gert ráð fyrir að inntökuskilyrði í Kennaraháskóla Íslands séu stúdentspróf eða annað nám, ef skólastjórn telur það jafngilt og mælir með því og menntmrn. fellst á það. — Þetta er tilvísun beint í frv.
Nú vaknar sú spurning og mig langar til að bera þá spurningu fyrir hæstv. menntmrh.: Hefur þetta verið svo? Og ef það hefur verið svo, þá í annan stað: Er eðlilegt að skólastjórn hafi þetta feikilega vald að meta hvort annað nám, sem svo er hér kallað, standi jafnfætis stúdentsprófi? Nú vitum við að það geta risið ákaflega viðkvæm deilumál sem snerta t. d. fólk sem af alls konar félagslegum ástæðum er t. d. menntað erlendis og kemur síðan og vill sækja um upptöku í þennan skóla. Jafnframt vitum við að skólastjórnir geta haft tilhneigingu til þess að vera mjög íhaldssamar í þessu mati sínu og vilja með þeim hætti auðvitað gera veg síns skóla sem mestan, en slíkur vegsauki getur hins vegar verið misskilinn og beinlínis valdið vandræðum. Mér sýnist þess vegna í fljótu bragði að það sé ekki aðeins óþarfi, heldur geti það jafnvel valdið skaða að færa skólastjórn þetta vald og ætti að vera nóg að hafa þetta vald hjá menntmrn. þannig að inntökuskilyrði séu stúdentspróf eða próf sem menntmrn. meti jafngilt þessu prófi. Hér vitum við að á takast tvö sjónarmið. Annars vegar er svokallað sjálfstæðissjónarmið skólans, en slíkt sjálfstæðissjónarmið getur endað í mjög óbilgjörnu félagslegu ranglæti. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. menntmrh.: Er þetta nýmæli? Og í annan stað, hvort hann geti ekki fallist á það með mér að hér geti verið um að ræða óeðlilegt vald skólastjórnar viðkomandi skóla.