21.12.1979
Efri deild: 15. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

Þinghlé

Forseti (Helgi Seljan):

Þar sem ég tel sennilegast að þetta verði síðasti fundur þd. fyrir þinghlé, jólaleyfi, vil ég leyfa mér að þakka hv. þdm. fyrir góða samvinnu þessa daga sem við höfum unað hér saman. Ég óska hv. þdm. gleðilegrar jólahátíðar og farsæls komandi árs. Ég flyt sömu óskir til skrifstofustjóra Alþingis og til starfsfólks þess alls. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og vænti þess, að við hittumst öll heil á næsta ári.