06.05.1980
Sameinað þing: 52. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2352 í B-deild Alþingistíðinda. (2252)

149. mál, áfengiskaup ráðuneyta

Helgi Seljan:

Herra forseti. Um leið og ég þakka hv. fyrirspyrjanda það að koma með þessa fsp. hér á dagskrá og um leið og ég minni einnig á vissar tölur úr þeirri skýrslu, sem hæstv. ráðh. las frá menntmrn., þá vil ég aðeins segja þetta:

Undrandi ég aðeins vildi segja

er ósköp þessi fyrir hlustir ber:

Um slíkan þorsta er ekki hægt að þegja,

nei, þetta gengur alveg fram af mér.