07.05.1980
Neðri deild: 71. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)
62. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):
Herra forseti. Allshn. þessarar hv. deildar hefur haft til athugunar frv. til laga um breyt. á lögum nr. 74 21. ágúst 1974 um meðferð opinberra mála, sbr. lög nr. 23 6. maí 1976. Hér er um að ræða þrjár breytingar á hámarki sektarheimildar til handa lögreglustjórum og lögreglumönnum og eru þessar breytingar gerðar til samræmis við verðlagsbreytingar í landinu.
Ein af þessum breytingum sker sig úr, en þar er gert ráð fyrir að sektarheimild sé hækkuð úr 30 þús. kr. í 500 þús. kr. Skýringin er sú, að síðast þegar þessar heimildir voru teknar til endurskoðunar og hækkaðar, árið 1976, varð þessi heimild útundan.
Eitt nýmæli er í þessu frv. er heimilar upptöku eigna er tengjast brotum, enda fari verðmæti þeirra eigi fram úr 100 þús. kr.
Allshn. þessarar hv. deildar er sammála um að mæla með samþykkt frv. Standa allir nm. að því áliti.