09.05.1980
Efri deild: 79. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í B-deild Alþingistíðinda. (2399)

105. mál, eignarréttur og afnotaréttur fasteigna

Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 19 6. apríl 1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþ. óbreytt.