21.12.1979
Neðri deild: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

Umræður utan dagskrár

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Vegna fsp. hv. 1. þm. Vestf. vil ég segja til viðbótar við það sem hæstv. fjmrh. sagði, að það var ekki fyrr en kl. eitt í dag að samgrn. vissi um þessa erfiðleika. Flugmálastjóri var á fundi hjá mér kl. hálfeitt og hafði ekki hugmynd um þá. Þarna er því um að ræða sambandsleysi. Vitanlega er ég sammála hv. 1. þm. Vestf. um að slíkt megi ekki koma fyrir, hvorki nú né síðar, að flug stöðvist, allra síst má það koma fyrir rétt fyrir jólin. Að öðru leyti vísa ég í það sem hæstv. fjmrh. sagði. Þetta mál fær auðvitað skjóta lausn.