09.05.1980
Neðri deild: 72. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2544 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)
161. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki o.fl.
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem hv. 2. þm. Suðurl. sagði áðan.
Það er ekki siður, ef um stjfrv. er að ræða, að n. fjalli um nema það frv. sem liggur fyrir, en fari ekki að taka alla löggjöfina til endurskoðunar og umfjöllunar. Þau ár, sem ég hef verið hér á Alþ., þekki ég ekki þau vinnubrögð, nema þá sérstaklega sé um það beðið, þannig að það var ekki að mínu mati hægt að ætlast til þess, að landb. Nd. færi að taka það verk að sér, án þess að um það væri þá sérstaklega beðið, að endurskoða alla þessa löggjöf. Hitt get ég alveg fallist á með hv. 2. þm. Suðurl., að það þyrfti að líta á þessa löggjöf. En það er alveg hægt að gera það, þó að þetta frv. út af fyrir sig sé nú samþ. Það breytir engu í því.
Að öðru leyti vil ég ekki fara að hefja hér umr. um þetta mál, þó að það væri kannske ástæða til að ræða þau mál, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. kom hér mn á. Ég var alveg sammála mörgu af því sem kom fram í hans máli, en það er margt fleira í þessum málum sem væri kannske ástæða til þess að ræða, en ég sleppi því hér. Ég vil bara segja að þetta er stjfrv. og við fjölluðum aðeins um það frv. sem fyrir lá, eins og venja er.