17.05.1980
Neðri deild: 79. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2788)

133. mál, skipulag ferðamála

Frsm. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Samgn. Nd. hefur fjallað um það frv. sem hér er til umr. og hafa allir nm. samþykkt að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það hefur komið frá Ed., að höfðu samráði við formann Ferðamálaráðs.

Nefndin leggur til að frv. verði samþ. óbreytt.