08.01.1980
Sameinað þing: 7. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

Þinghlé

Forseti (Jón Helgason):

Ég leyfi mér að óska hv. alþm. og starfsliði Alþingis gleðilegs árs og þakka því fyrir liðið ár, um leið og ég býð menn velkomna til starfa og vil láta í ljós þá ósk og von, að starf okkar megi verða farsælt á þessu nýbyrjaða ári.