22.05.1980
Neðri deild: 85. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3053 í B-deild Alþingistíðinda. (3003)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það er ekki nóg með að ég hef orðið þess var, að bæði stjórn og stjórnarandstaða hefur verið stundum óánægð síðustu dægrin með fundarsköp forseta, heldur standa nú á honum spjótin úr öllum áttum. En satt best að segja eflir það mig heldur í því, að forseti hafi verið nokkuð réttlátur í sinni fundarstjórn.