22.05.1980
Sameinað þing: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3068 í B-deild Alþingistíðinda. (3019)
227. mál, störf milliþinganefndar í byggðamálum
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þessi fsp. er í tveimur liðum. Sá fyrri: „Hvað líður störfum mþn., sem kosin var af Sþ. til að gera tillögur um markmið, leiðir og mörkun almennrar stefnu í byggðamálum samkv. þál. um mþn. í byggðamálum frá 13. apríl. 1973, og hvenær er þess að vænta að nefndin skili áliti.“
Byggðanefnd var kjörin samkv. þeirri þál., sem nefnd var, og nefndin vann á næstu árum allmikið starf sem áður hefur verið gerð grein fyrir á Alþ., eins og hv. fyrirspyrjandi rakti. M. a. hefur nefndin beitt sér fyrir samþykktum á Alþingi á sviði byggðamála og átt þátt í stofnun byggðadeildar hjá Framkvæmdastofnun ríkisins. Byggðadeildin gerir áætlun um þróun byggða og atvinnulífs í þeim tilgangi að tryggja atvinnu og búsetu í byggðum landsins. Hún fjallar um áhrif opinberra aðgerða á byggðaþróun og gerir tillögur til úrbóta. Þannig má segja að deildin hafi tekið við þeim verkefnum sem nefndinni voru falin, enda leitaði nefndin til byggðadeildar um aðstoð við gerð lokaskýrslu. Byggðadeild hefur gert uppkast að nokkrum köflum væntanlegs nál. og vinnur áfram að málinu.
Önnur spurningin: „Hver er orðinn kostnaður við störf nefndarinnar.“
Svarið er, að kostnaður við störf nefndarinnar hefur enginn orðið til viðbótar við það sem kom fram í svari forsrh. við sams konar fsp. á Alþ. 5. des. 1978, Alþt. það ár, dálkar 1287–1290.