22.05.1980
Efri deild: 102. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3103 í B-deild Alþingistíðinda. (3070)
Umræður utan dagskrár
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð.
Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson greindi rétt frá því, sem hann sagði í utanrmn. fyrir stundu, og þarf ekki að endurtaka það. Ég tók ekki beint þátt í umr. þar, en það kom auðvitað fram af hálfu þm. Sjálfstfl., sem alkunna er, að Sjálfstfl. hefur aldrei léð máls á því, að kjarnorkuvopn væru á Keflavíkurflugvelli. Það er einmitt nauðsynlegt að hér komi fram, að það er enginn þingflokkur til á Íslandi sem nokkru sinni hefur léð á því máls að kjarnorkuvopn væru á Keflavíkurflugvelli eða á íslenskri grund. Það væri auðvitað alvarlegt brot af hálfu Bandaríkjamanna ef þeir ætluðu að reyna að fara á bak við okkur í því efni.
Það er líka mjög alvarlegt að til skuli íslenskir menn sem sí og æ eru að reyna, jafnvel með rangtúlkun og rangþýðingum eins og hér kom fram áðan, að koma því á framfæri að einhverjir erlendir sérfræðingar haldi því fram og telji sig jafnvel vita og vera sannfærða um að á Íslandi séu kjarnorkuvopn. Það er alvarlegt mál og það er sjálfsagt að láta rannsaka það ofan í kjölinn, svo að engum geti blandast hugur um að Ísland er og verður kjarnorkuvopnalaust land.