28.05.1980
Neðri deild: 88. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3194 í B-deild Alþingistíðinda. (3127)

123. mál, sönnun fyrir dauða manna af slysum

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Við meðferð þessa máls í Ed. voru gerðar nokkrar breytingar við frv. Þær voru reyndar samkv. ábendingu minni sem ég kom með við 1. umr. málsins. Ég benti á það þá, og reyndar þegar ég flutti málið í fyrsta sinn, að þessar tvær greinar þyrftu frekari athugunar við. Ráðuneytisstjóri dómsmrn. ræddi við mig um þetta mál, og það er í fullu samkomulagi við mig sem 1. flm. að þessar breytingar voru gerðar. Hæstv. dómsmrh. hefur heitið því að láta kanna þau tvö atriði, sem nú eru felld burt, við frekari endurskoðun þessara laga.

Ég fagna því, að þetta mál skuli vera komið á þetta stig, og vænti þess, að það verði samþykkt nú.