29.05.1980
Neðri deild: 90. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3214 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)

194. mál, aðstoð við þroskahefta

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Í þessari brtt. fjmrh. felst að draga úr ákveðnum skuldbindingum Alþingis varðandi fjármögnun þeirra verkefna sem í frv. felast, sem ég taldi nauðsynlegar og samþykktar væru við atkvgr. við 2. umr. Ég tel mig hafa sýnt nægilega fram á vilja minn í þessu máli og fyrir framgangi þess. Þessi atkvgr. reynir því á afstöðu margra annarra þm. en mín til brtt. og þessa máls í heild. Því greiði ég ekki atkv.