29.05.1980
Neðri deild: 91. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3231 í B-deild Alþingistíðinda. (3198)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þá er dagskrá þessa fundar tæmd og með því að þetta er síðasti fundur í hv. deild leyfi ég mér að þakka hv. þdm. fyrir góða samvinnu, varaforsetum ágæta samvinnu og þingskrifurum. Þeim hv. þdm., sem eiga um langan veg heim að sækja, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess, að við hittumst allir heilir á hausti komanda.