29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3234 í B-deild Alþingistíðinda. (3207)

Kosning sjö manna og jafnmargra vara í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins

Forseti (Jón Helgason):

Vegna orða hv. ræðumanns vil ég skýra frá því, að mér var ekki kunnugt um fyrr en 20 mínútum fyrir tvö að hér yrði ekki samkomulag. Munu margir þm. geta borið vitni um að ég hafði gert ráð fyrir að þessi kosning gæti farið fram án þess að skrifleg kosning yrði.