29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3236 í B-deild Alþingistíðinda. (3213)

Kosning sjö manna og jafnmargra vara í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég minnist manna sem um og í kringum síðustu kosningar töluðu um heilindi og drengskap í annarri hverri setningu hvenær sem tækifæri gafst. Nú veit ekki aðeins þingið, heldur líka þjóðin, hvað þeir áttu við.