05.02.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (753)

218. mál, búvöruverð

Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég vonast til þess, að hæstv. ráðh. standi við þessi orð og reyni að sanna að samvinnufélögin féfletti bændur. Þetta eru mjög ómakleg orð og ég er undrandi á að hæstv. ráðh. skuli nota þessa síðustu daga til að segja slíkt hér á Alþ. Því miður er ekki tækifæri til að ræða við hann frekar á þessari stundu.