03.12.1980
Efri deild: 19. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (1002)
107. mál, manntal 1981
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Því er til að svara varðandi þessa spurningu, að þetta sérstaka mál bar ekki á góma í viðræðum við hagstofustjóra. Hins vegar held ég að ljóst sé, eftir að nefndarmenn höfðu rætt við hann, að Hagstofan hefur fullan hug á því og þeir aðrir aðilar, sem standa að framkvæmd þessa manntals, að það gefi sem gleggsta og réttasta mynd af því, hvernig íbúatölu er háttað og hvar á landinu menn eiga heimili. Þess vegna hlýtur þetta einnig að koma þar til álita. En auðvitað er rétt að við síðari umfjöllun þessa máls verði þessari ábendingu sérstaklega komið á framfæri við hagstofustjóra.