22.10.1980
Efri deild: 5. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (101)
Umræður utan dagskrár
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég er sammála hæstv. utanrrh. um að við eigum ekki að eyða öllum fundartímanum í þetta mál. Ég held að ég hafi talað í tvær eða þrjár mínútur áðan til þess eins að skora á þdm. að hafa samstöðu um að fella þennan skatt niður eins og hann nú liggur fyrir. En að gefnu tilefni kemst ég ekki hjá því að segja örfá orð í sambandi við gerð skattalaga á sínum tíma.
Ég held að alþm. almennt í öllum flokkum og kannske ekki síst þeir sem sæti áttu í fjh.- og viðskn., hafi lagt meiri vinnu í skattalagafrv. á sínum tíma og hin endanlegu skattalög en nokkurt mál annað á undangengnum árum. Það náðist full samstaða um flest atriði skattalaganna önnur en skattheimtuna, þ.e. skattstigana. Um öll tæknileg atriði var full samstaða. Þetta eru ekkert Matthíasarlög frekar en Ólafslög, — og þá ekki kennd við sama Ólaf og gömlu ólafslögin. Þetta voru lög sem við settum allir saman, og ég held að lögin sem slík séu í flestu tilliti nokkuð góð. Ég hef aldrei heyrt það áður að neinn flokkur hafi sérstaklega eignað sér þessi lög eða borið þau af sér. Við erum að rífast um skattheimtuna, um skattstigana, fyrirkomulag skatta.
Þegar þetta sérstaka ákvæði um að skattur skuli sérstaklega lagður á börn var á sínum tíma samið var ákveðið að það yrði staðgreiðsla skatta og þá talið ekkert óeðlilegt að taka einhverja smáskatta af börnunum jafnóðum og þau fengju launin greidd, eins og núna er raunar gert að því er varðar skyldusparnað, — ekki tekið sem skattur, heldur tekið þó af þeim og lagt í sjóði o.s.frv. í stað þess að taka það af foreldrum. Við þurfum þess vegna ekkert að vera að rífast um þetta atriði. Þetta liggur algjörlega skýrt fyrir og vita það allir.
En ástæðan til þess, að eðlilegt er að fella þennan skatt niður núna, er sú sem áður hefur fram komið, að skattheimtan kemur allt of seint, börnin bjuggust ekki við þessu og hafa þá eytt skattpeningunum eða safnað undir skólagöngu o.s.frv. Það kemur á versta árstíma. Þetta er svo lítið fé fyrir ríkið, að það getum engum sköpum skipt. Þess vegna er langsamlega eðlilegast og heppilegast að við höfum um það fulla samstöðu að leggja þennan skatt niður í besta bróðerni og séum ekki að eyða tíma í rifrildi.
En varðandi hitt, að fara núna að leggja á einhvern Matthíasarskatt, — ég veit að þessi hv. þm. hefur í marga mánuði verið að vinna að því að gera einhverjar efnahagstillögur m.a. verið að gæla við að koma með gífurlegar skattahækkanir af öllu tagi á verkalýðinn eftir að búið væri að ná samningum, rýra kjör hans enn þá frekar, það vitum við. Hann vantaði nafn á skattinn. Það er hægt að finna einhver fleiri nöfn en Matthías. Hví ekki að koma með Ólafsskatt?