08.12.1980
Neðri deild: 25. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

131. mál, verðgildi íslensks gjaldmiðils

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir það sem síðasti ræðumaður sagði. Ég tel það nánast vanvirðu við hv. deild að hér skuli ekki sitja inni neinn af þeim ráðh. sem ættu raunverulega að fjalla um það stórmál sem hér er á ferðinni, ekki fjmrh., ekki viðskrh. og ekki hæstv. forsrh.

Það væri kannske rétt að skjóta þeirri spurningu til hæstv. forseta þessarar deildar, sem ætti að hafa nokkurt samband við hæstv. ríkisstj., hvort það gæti verið að þessir ráðh. væru að undirbúa einhverjar efnahagstillögur.