09.12.1980
Neðri deild: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Í þessu fyrirspurnaflóði hv. þm. utan dagskrár um iðnaðarmál, skattamál, aðflutningsgjöld, fjárlög o. fl. beindi hann einni fsp. til mín, þ.e. varðandi þá nefnd sem skipuð hefði verið til að gera samanburðarathugun á starfsskilyrðum atvinnuveganna. Ég mun að sjálfsögðu svara þeirri spurningu.
9. sept. skipaði ríkisstj. nefnd til að gera samanburðarathugun á starfsskilyrðum iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar með tilliti til samkeppnisaðstöðu í útflutningi og á heimamarkaði. Verði að því stefnt að skapa atvinnuvegunum sambærilega aðstöðu, m.a. með tilliti til mismunandi álagningar opinberra gjalda, sem leiðir til óhagstæðrar gengisskráningar fyrir einstaka atvinnuvegi.
Jafnframt var nefndinni falið að gera athugun á lækkun á sölugjöldum af fjárfestingarvörum og hjálpartækjum með tilliti til jöfnunar á samkeppnisaðstöðu og aukinnar framleiðni svo og á breytingu á stimpilgjöldum.
Í þessa nefnd voru skipaðir dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, formaður, og fjórir aðrir nefndarmenn eftir tilnefningu iðnrn., sjútvrn., landbrn. og fjmrh., þeir Ingi R. Helgason hæstaréttarlögmaður, Árni Benediktsson framkvæmdastjóri, Pétur Sigurðsson mjólkurfræðingur, Árni Kolbeinsson deildarstjóri í fjmrn.
Á þeim þrem mánuðum, sem nefndin hefur starfað, hefur hún aflað verulegra gagna um þessi mál og haldið allmarga fundi. Enn hefur hún ekki skilað áliti, enda kannske ekki von. Nefndin er að störfum, og við væntum þess, að góðs árangurs megi vænta af starfi hennar.