09.12.1980
Neðri deild: 26. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1199)

158. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég lýsi ánægju minni með það, að hæstv. fjmrh. er kominn í salinn. Um leið vil ég gefa hv. 1. þm. Vesturl. þær upplýsingar, að þegar skattalögin voru afgreidd 1978 voru þau afgreidd með nafnakalli í minni deild. Ég taldi þau lög meingölluð og afstaða mín gegn þeim er skráð í þingtíðindum frá þeim tíma.