10.12.1980
Efri deild: 23. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)
156. mál, tímabundið vörugjald
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Það gerist nú æ tíðara að hæstv. ráðh. láta skapið hlaupa með sig í gönur hér á hinu háa Alþingi. Ég sagði áðan að hæstv. fyrrv. vinstri stjórn hefði hækkað þetta gjald á árinu 1979 um 6% og þessi 6% legðu á þjóðina á árinu 1981 samkv. tekjuáætlun hæstv. fjmrh. 11 milljarða kr. Þetta er skilgetið afkvæmi hæstv. ráðherra.