11.12.1980
Neðri deild: 28. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

152. mál, biskupskosning

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Fyrir liggur till. frá hæstv. fjmrh. um að málinu verði vísað til menntmn. Ég tel ástæðulaust annað en verða við því að bera þá till. upp. Það er ekkert sem mælir á móti því að málinu verði vísað þangað. Það eru til fordæmi fyrir hvor tveggju, að mál, sem nefnd hefur flutt, hafi gengið beint til 2. umr. án þess að vera vísað til nefndar og eins að hafa þann hátt á sem hér er lagður til.