11.12.1980
Efri deild: 29. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)
143. mál, Fiskimálasjóður
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 89 5. júní 1947, um Fiskimálasjóð, með síðari breytingum. Þetta frv. kemur frá Nd. og var flutt þar og samþ. óbreytt. Þetta er einfalt mál og raunar sjálfsagt og í framhaldi af því sem oft hefur áður gerst. Það er raunverulega verið að færa upp vissar heimildir Fiskimálasjóðs í samræmi við hækkun verðlags í landinu. Fé Fiskimálasjóðs er varið, eins og kunnugt er, til eflingar í sjávarútvegi. Það er aðallega með tvennum hætti gert: Í fyrsta lagi með styrkveitingum samkv. 4. gr. laga sjóðsins og í öðru lagi með lánveitingum samkv. 5. gr.
Lögin hafa bundið hverja lánveitingu við tiltekna hámarksupphæð. Þessi hámarksupphæð hefur verið hækkuð á nokkurra ára fresti eftir aðstæðum og getu sjóðsins. Síðast var þessi hámarksupphæð hækkuð í 2 millj. kr. árið 1978.
Stjórn Fiskimálasjóðs er sammála um að geta sjóðsins og aðrar aðstæður leyfi að þessi upphæð verði nú hækkuð í 5 millj. kr. 1. gr. frv. fjallar því um það, að í stað 2 millj. kr. í 5. gr. laganna komi 5 millj. kr. — 2. gr. er um gildistöku.
Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til sjútvn.