15.12.1980
Efri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1429 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)

28. mál, meinatæknar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.og trn. þessarar hv. deildar hefur haft til umfjöllunar frv. til l. um meinatækna. Eins og kunnugt er eru starfsréttindi meinatækna nú vernduð í reglugerð, en hér er um að ræða lögverndun þess starfsheitis sem frv. fjallar um.

Heilbr.- og trn. leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd.

Ég vil taka fram að Gunnar Thoroddsen var fjarverandi afgreiðslu málsins, en allir aðrir nm. skrifa hér undir.