15.12.1980
Efri deild: 30. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1429 í B-deild Alþingistíðinda. (1412)

155. mál, ferðagjaldeyrir

Frsm, meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur haft til meðferðar frv. til l. um álag á ferðagjaldeyri. Eins og fram hefur komið varð ekki einhugur í nefndinni um afgreiðstu málsins. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hl. sem leggur til að frv. verði samþ.

Meiri hl. skipa Ólafur Ragnar Grímsson, sá sem hér stendur, Guðmundur Bjarnason, Kjartan Jóhannsson og Gunnar Thoroddsen.

Þeir sem skipa minni hl. eru Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson og munu þeir mæla fyrir því áliti sem þeir leggja fram.