27.10.1980
Neðri deild: 6. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í B-deild Alþingistíðinda. (153)

5. mál, barnalög

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir það svar sem hann gaf við spurningu minni. Það eru þá lög um almannatryggingar, nr. 67 frá 1971, með síðari breytingum, sem þarf að breyta, en ekki það frv. til barnalaga sem hér er á dagskrá. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin.