16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)

161. mál, stimpilgjald

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 36/1978, um stimpilgjald. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.

Hér er fyrst og fremst um að ræða breytingar að því er varðar verðmæti Íslensks gjaldmiðils 1. jan. n.k. og því nauðsynlegt að samræma lögin þeirri aðgerð.

Ég tel ekki ástæðu til að fjalla frekar um þetta mál en gert hefur verið og vil aðeins ítreka að nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.