16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1534 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)
148. mál, almannatryggingar
Frsm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um almannatryggingar, nr. 67/1971, með síðari breytingum. Hér er um að ræða ákvæði um þann hluta útgjalda lífeyristrygginga sem atvinnurekendur skulu bera. Eins og mönnum er kunnugt hefur hingað til verið og er í núgildandi lögum ákvæði um það, að ríkið skuli greiða 86% útgjalda lífeyristrygginga, en atvinnurekendur 14%. Í raun hafa þetta verið áætluð 2%, þ.e. 2% gjald af öllum launum, þannig að þessi 14% regla hefur raunverulega ekki verið í framkvæmd. Það, sem hér er einfaldlega gert, er að lagt er til að gjaldstofn lífeyristryggingagjalda skuli vera hinn sami og gjaldstofn launaskatts og gjaldastigi 2%. Þetta hefur í raun og veru ekki aðrar breytingar í för með sér en að almannatryggingum er ekki gert að endurgreiða eða lækka iðgjald næsta árs hafi greiðsla verið hærri en áætlað var.
Nefndin hefur fjallað um málið á nokkrum fundum og kallað embættismenn og aðila vinnumarkaðarins á sinn fund og leggur til að frv. verði samþykkt. Einstakir nm. áskildu sér þó rétt til að flytja brtt. eða fylgja öðrum sem fram kunna að koma.
Guðmundur G. Þórarinsson og Pétur Sigurðsson voru fjarverandi afgreiðslu málsins.