16.12.1980
Neðri deild: 32. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1539 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

147. mál, almannatryggingar

Forseti (Garðar Sigurðsson):

Ég hefði haft hug á því að reyna að koma þessu máli frá með atkvgr. nú að loknum umr. og auk þess að freista þess að halda nýjan fund. Vonast ég til þess að hafa góða samvinnu við dm. í því efni til þess að koma fleiri málum frá deildinni til Ed., því að hún er verkefnalítil eða verkefnalaus.