17.12.1980
Neðri deild: 34. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1628 í B-deild Alþingistíðinda. (1720)

156. mál, tímabundið vörugjald

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég er, eins og hv. þm. Guðrún Helgadóttir, hlynntur brtt. sem hér liggur fyrir. Ég er eins og þessi hv. þm. áhugasamur um að vörugjald falli niður af hljómplötum. Munurinn á afstöðu minni og hennar er hins vegar sá, að ég tel rétt að greiða atkv. í samræmi við skoðanir mínar og standa þétt að baki Birgis og segi já.